Sagan

 

Fyrirtækið Johan Rönning hf var stofnað árið 1933 af Norðmanninum Johan Rönning sem kom til Íslands árið 1920 til að vinna við uppsetningu á Elliðaárvirkjun.
Hann varð síðan íslenskur ríkisborgari árið 1933. Árið 1941 var fyrirtækinu breytt í hlutafélag og var aðaláherslan þá lögð á rafverktakastarfsemi og voru starfsmenn um 50 víðs vegar um landið.
Árið 1961 var rafverktakastarfsemin seld og sneri fyrirtækið sér þá algerlega að innflutningi og heildsölu á rafbúnaði og öðru efni fyrir rafverktaka.
Árið 1973 flutti fyrirtækið í sitt eigið húsnæði í Sundaborg. Það húsnæði hefur verið stækkað bæði 1987 og 1994 til að geta boðið upp á nauðsynlegt vöruúrval.
Árið 1987 var heimilistækjadeild stofnuð sem var fyrst til húsa í Kringlunni en er núna með verslun í Borgartúni.
Árið 2003 urðu eigendaskipti þegar Bogi Þór Siguroddson og kona hans Linda Björk Ólafsdóttir keyptu félagið.
Árið 2007 sameinaðist félagið systurfélögum sínum Sindra og Hebron undir nafni Johan Rönning og flutti félagið höfuðstöðvar sínar í stórglæsilega 6.680 m2 aðstöðu að Klettagörðum 12. 

Johan Rönning hf hefur starfað í 70 ár og þannig átt þátt í rafvæðingu landsins frá upphafi. Þjónusta og þekking Johan Rönning hf leggur mikla áherslu á heildarþjónustu við viðskiptavininn. Allur tæknibúnaður og rafbúnaður krefst sérþjálfaðs starfsfólks.
Hjá félaginu starfa nú 70 starfsmenn, allir sérmenntaðir sínu sviði, viðskiptafólk, tæknifræðingar, rafmagnsverkfræðingar og rafvirkjar.


Aðalmarkmið okkar er: Hæft starfsfólk og traustir birgjar veita góða þjónustu af þekkingu og reynslu í þína þágu.