Strandpartý Johan Rönning

Föstudaginn 4. júní hélt starfsfólk Johan Rönning Strandpartý fyrir viðskiptavini. Partýið var haldið í víkinni við Skarfaklett sem er hér við hlið húsins í Klettagörðum. Ríflega 200 manns gerðu sér dagamun í blíðskaparveðri. Starfsmenn Sindra héltu skrúfukeppni sína þar sem þátttakendur gátu unnið glæsilega Dewalt borvél að verðmæti 50 þúsund. Sigurvegari með tímann 12,07 sekúndur var Haraldur Örn Arnarson hjá Rafmögnun og óskum við honum til lukku með vinninginn.

Skemmtikraftur kvöldsins var enginn annar en Haffi Haff sem mætti á ströndina ásamt dönsurum. Óhætt er að segja að hann hafi slegið í gegn með líflegri framkomu. En myndir segja meira en mörg orð.
 


-