Johan Rönning fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2010
Johan Rönning hefur hlotið nafnbótina fyrirmyndarfyrirtæki ársins í Vinnumarkaðskönnun VR 2010. Fyrirtækið lenti í 13. sæti í flokki stærri fyrirtækja, en það eru fyrirtæki sem eru með fleirri en 50. starfsmenn. Auk þess að vera í hópi fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2010 þá fékk félagið viðurkenningur fyrir að vera "Hástökkvari ársins" færðist upp um 55. sæti milli ára úr því 68. í það 13. eins og áður segir. Svarhlutfall í könnuninni var ríflega 90% en félagið hefur ætíð óskað eftir því að allir starfsmenn félagsins svari könnuninni óháð því hvort að viðkomandi sé VR félagi eður ei.
Stjórn og starfsfólk félagsins bera þessa viðurkenningu með stolti og munu svo sannanlega leggja sitt af mörkum við áframhaldandi uppbyggingu félagsins.
VR hefur staðið fyrir könnun á fyrirtæki ársins í rúman áratug og síðustu fimm ár hefur SFR, stéttarfélag starfsmanna hins opinbera, tekið þátt í henni. Þetta er stærsta vinnumarkaðskönnun á Íslandi og í ár fengu ríflega 30 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði spurningaeyðublað til að svara.
Allar nánari upplýsingar varðandi könnunina er hægt að finna á www.vr.is
-
