Kynningar í mars
Nú í mars mánuði munum við leggja land undir fót og halda kynningar í öllum útibúum okkar á neyðarlýsingu og ræsibúnaði. Áhersla verður lögð á viðhald og rekstur neyðarlýsingakerfa. Kynntar verða verklagsreglur vegna peru- og rafhlöðuskipta ásamt kynningu á ábyrgð húseinanda á viðhaldi slíkra kerfa. Einnig verður sýnt það úrval sem Johan Rönning getur boðið í ræsibúnaði fyrir lampa. Sífellt algengara er að húseigendur óski eftir því að lampabúnaður sé uppfærður með því að skipta út ræsibúnaði í stað þess að skipta út lömpum. Skráning fer fram á namskeid@ronning.is. Vinsamlega takið fram hvar sitja á kynningu. Boðið verður upp á hádegishressingu. Kynningarnar hefjast klukkan 12 og er áætlað að þær taki 90 mínútur. Þær verða haldnar á eftirfarandi stöðum:
Kynning okkar í Reykjavík verður með lítið eitt öðru sniði. Áhersla verður lögð á neyðarlýsingarkerfi og rekstur þeirra. Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur hjá Brunamálastofnun mun flytja erindi um reglur og staðla er varða úttektir neyðarlýsingarkerfa. Að því loknu verður kynntur neyðarlýsingarbúnaður frá AWEX. Kynningin verður haldin í Klettagörðum 12, þriðjudaginn 16. mars og hefst klukkan 11. Áætlað er að hún taki 90 mínútur. Boðið verður upp á hádegishressingu.
-
