Ljósakynningar í Klettagörðum
Þriðjudaginn 2. febrúar kynnti Lars Thomas Hansen frá THORN ýmsar nýjungar frá fyrirtækinu. Þrjár ólíkar kynningar voru í boði yfir daginn. Sérstök áhersla var á notkun ljóstvista í gatna- og svæðislýsingu og voru kostir þeirra og gallar metnir. Athygli vakti hversu faglegur Lars Thomas var í umfjöllun sinni. Mikill fjöldi fagaðila sótti okkur heim yfir daginn.
Lýsingadeild Johan Rönning vill þakka öllum þeim sem lögðu leið sína í Klettagarða kærlega fyrir komuna og vona að allir hafi haft nokkuð gagn af.
-
