Þökkum frábærar móttökur !!!

Alls þáðu tæplega 500 viðskiptavinir Johan Rönning boð í árlegt Jólahangikjöt. Ákaflega vel fór á mönnum sem tóku til hendinni við að klára á annað hundrað kíló af hangikjöti í bland við uppstúf, laufabrauð og annað meðlæti sem að sjálfsögðu var skolað niður með Egils Malt & Appelsín.

Ekki skemmdu fyrir ljúfir jólatónar Óskars og Ómars Guðjónssyna sem sáu um að koma öllum í jólaskap.

Við viljum þakka öllum okkar viðskiptavinum fyrir frábæran dag og hlökkum svo sannanlega til að sjá ykkur að ári.

Með hátíðarkveðju,

Starfsfólk Johan Rönning


-