Frábær hugbúnaður á íslensku frá Hager

Magnet Planer

 Hager er leiðandi framleiðandi á rafmagnstöflum og töflubúnaði. Skáparnir og einingarnar í þá eru hannaðar með þarfir rafvirkja í huga. Tilbúnar einingar einfalda uppbyggingu skápanna og er fjölbreytt úrval eininga í boði. Til að einfalda hönnun skápanna bjóðum við nú frábæran hugbúnað á íslensku. Með honum er þægilegt að velja gerð og stærð skáps og einingar í hann. Ef setja á safnskinnur í skápinn má einnig velja þær. Þegar allar einingar hafa verið valdar er mögulegt að prenta út efnislista ásamt teikningu af skápnum. Einnig má senda gögn frá hugbúnaðinum með tölvupósti. Hugbúnaðurinn nýtist hönnuðum sérlega vel því með honum má færa útlitsmyndir  beint yfir í Autocad. Útlitsmyndir geta sýnt skáp með eða án hlífa og einnig með hurð.

Hugbúnaðinn má nálgast hér:

Semiolog

 Merkingar á töflubúnaði segja oft meira en mörg orð um frágang töflubúnaðar. En snyrtilegar merkingarnar eru ekki alltaf verið einfaldar í framkvæmd. Nú höfum við í samstarfi við Hager gefið út hugbúnað þeirra, Semiolog, á íslensku. Með honum má merkja allan töflubúnað frá Hager með myndum, tilbúnum texta eða sérmerkingum. Aðgerir eru einfaldar og umfram allt fljótlegar.

 

Hugbúnaðinn má nálgast hér:

 

 

 

 

 

 


-