Johan Rönning styrkir Björgunarsveitir um áramót

Johan Rönning hefur gert samning við Björgunarsveitirnar Kyndil í Mosfellsbæ og Súlur á Akureyri um kaup á flugeldum.  Flugeldarnir verða notaðir sem áramótagjafir til viðskiptavina Johan Rönning, Rönning, Sindra & Hebron. Eins og mörg undanfarin ár hefur félagið gefið vildarviðskiptavinum sínum jólagjöf til þess að þakka gott samstarf á árinu. Þetta ár, ákvað félagið að láta gott af sér leiða með flugeldakaupum til styrktar tveggja öflugra Björgunarsveita í landinu. Það er von félagsins að viðskiptavinir þess munu taka vel á móti þessari nýbreytni.


-