Glæsileg sýningaraðstaða í Klettagörðum
Lýsingardeild Johan Rönning hefur opnað glæsilega sýningaraðstöðu í Klettagörðum 12. Til sýnis er fjöldi ólíkra lampa og ljóstvista við margvíslegar aðstæður. Þar er fullkomin aðstaða fyrir kynningar og námskeið á öllu er viðkemur lýsingu.
Föstudaginn 19. maí héldu þeir Jan Erik Jerleke frá Thorn og Patrick Lennermark frá Vossloh-Schwabe kynningu fyrir hönnuði. Jan Erik kynnti nýtt svæðisljós, Orus. Lampinn hefur mjög þröngan ljósgeisla sem næst með FlatBeam®-tækni. Einnig kynnti hann nýtt strokkljós, Cruz, sem er sérlega þægilegt í uppsetningu. Patrick kynnti möguleika ljóstvista sem ljósgjafa innan- og utanhúss.


Lýsingardeild Johan Rönning starfar á öllum sviðum faglýsingar, með áherslu á brautarlýsingu, ljóstvista, götu- og svæðislýsingu.Lýsingardeild Johan Rönning hefur opnað glæsilega sýningaraðstöðu í Klettagörðum 12. Til sýnis er fjöldi ólíkra lampa og ljóstvista við margvíslegar aðstæður. Þar er fullkomin aðstaða fyrir kynningar og námskeið á öllu er viðkemur lýsingu.
Föstudaginn 19. maí héldu þeir Jan Erik Jerleke frá Thorn og Patrick Lennermark frá Vossloh-Schwabe kynningu fyrir hönnuði. Jan Erik kynnti nýtt svæðisljós, Orus. Lampinn hefur mjög þröngan ljósgeisla sem næst með FlatBeam®-tækni. Einnig kynnti hann nýtt strokkljós, Cruz, sem er sérlega þægilegt í uppsetningu. Patrick kynnti möguleika ljóstvista sem ljósgjafa innan- og utanhúss.
Lýsingardeild Johan Rönning starfar á öllum sviðum faglýsingar, með áherslu á brautarlýsingu, ljóstvista, götu- og svæðislýsingu.
-
