Johan Rönning á Akureyri flytur að Draupnisgötu 2
Johan Rönning hefur flutt rafbúnaðarheildsölu sína að Draupnisgötu 2 á Akureyri. Um er að ræða 450m2 húsnæði með ákaflega góðri lofthæð og aðkeyrsludyrum.

Föstudaginn 11. apríl var haldið vígsluteiti í nýjum húsakynnum Johan Rönning og var góð aðsókn bæði frá fagaðilum ásamt velunnurum félagsins sem kynntu sér nýju aðstöðuna. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá aðstöðunni.

-
