Opnunarteiti í Klettagörðum

Við bjóðum alla viðskiptavini félagsins velkomna í opnunarteiti föstudaginn 23. nóvember næstkomandi í Klettagörðum 12. Þar gefst viðskiptavinum gott tækifæri í að sjá nýja og stórglæsilega aðstöðu félagsins ásamt því að bragða á grillmat og fljótandi veigum. Að sjálfsögðu verður "LIVE" tónlist og skemmtiatriði.
Gamanið hefst klukkan 17.30 og lýkur kl. 20.30 með rútuferð á Players í Kópavoginum. Boðið verður upp á rútuferðir úr útibúum okkar í Reykjanesbæ og Selfossi og eru upplýsingar varðandi brottfarir þaðan og komu veittar á þeim stöðum.


-