Sameining

Stjórnir Johan Rönning hf., Sindra hf. og Hebron ehf. hafa ákveðið að sameina félögin undir einni kennitölu. Fyrr á árinu var Raftækjaverslun Íslands hf. sameinuð Johan Rönning hf.

Fyrirtækin munu verða rekin sem sjálfstæðar þjónustueiningar og bera áfram sömu nöfn. Sameiningin mun því ekki breyta neinu í þjónustu þeirra við viðskiptavini félaganna. Móðurfélag og heiti samstæðunnar verður Johan Rönning hf.

Forstjóri Johan Rönning hf. samstæðunnar verður Haraldur Líndal Pétursson.
“Það býr mikill kraftur og metnaður í okkar öfluga starfsmannahópi. Velta samstæðunnar í núverandi eingarhaldi stefnir í yfir fimm milljarða á þessu ári úr um rúmum milljarði króna árið 2004. Á sama tíma hefur rekstrarhagnaður aukist hlutfallslega umtalsvert meira. Styrkur okkar eykst við það skref sem nú er tekið og við erum hvergi nærri hætt.”

Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir eigendur félaganna taka undir með Haraldi. “Í sameiningunni felast einnig miklir hagræðingarmöguleikar. Sölu og þjónustustarfsemi félaganna verður einnig einbeittari og skarpari og stoðstarfsemin hagkvæmari og markvissari.”

Höfuðstöðvar sameinaðs félags verða að Klettagörðum 12 í Reykjavík, en þangað flytur Johan Rönning starfsemi sína úr Sundaborg 11-15 í nóvember næstkomandi. Samtals rekur sameinað félag 13 starfsstöðvar út um allt land og starfsmenn eru um 110.
Nýtt skipurit Johan Rönning hf


-