Nýr starfsmaður
Óskar Gústavsson hefur verið ráðinn í sölustýringu hjá Johan Rönning hf í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi í rafvirkjun og starfaði um tíma hjá Rafvirkjaþjónustunni og Alcan í Straumsvík. Hann útskrifaðist sem tækni-fræðingur frá OT í Danmörku og hefur undanfarin 13 ár starfað í tæknideild Smith & Norland. Aðspurður sagðist Óskar vera fullur tilhlökkunar að takast á við þau verkefni sem framundan eru. Hjá Johan Rönning starfaði kraftmikið fólk, sér litist vel á það sem gert hafi verið undanfarin ár og sig langaði að leggja sitt af mörkum. Óskar er í sambúð með Stefaníu Baldursdóttur og eiga þau tvö börn. Áhugamálin eru einkum í útivist og ýmisskonar fjallabrölt, en undanfarið hefur hann einnig verið að fikta við golfkylfuna með æði misjöfnum árangri
-
