Rekstrarstjóri verslunar í Sundaborg
Óli Björn Zimsen hefur verið ráðin rekstrarstjóri verslunar í Sundaborg. Óli Björn sem starfað hefur hjá Johan Rönning síðan 1992, hefur gríðarlega mikla reynslu innandyra hjá félaginu og er markaðnum ásamt viðskiptavinum okkar vel kunnugur. Hann hefur nú þegar tekið við starfinu og er strax farin að láta til sín taka.
Verslun Johan Rönning í Sundaborg er valkostur fyrir þá fagaðila sem vilja hafa þann möguleika á að afgreiða sig sjálfir með sitt raflagnaefni eða fá sölumenn félagsins til að sjá um þeirra pantanir
-
