Nýir starfsmenn á Reyðarfirði
Nú nýlega voru ráðnir til starfa við útibú Johan Rönning á Reyðarfirði þeir Aðalsteinn Ólafsson og Karl Bóasson
Aðalsteinn Ólafsson er 29 ára gamall frá Borgarfirði eystri, kvæntur Ölmu Sigurbjörnsdóttur og eiga þau tvo stráka.Hann er með sveinspróf í rafvirkjun og hefur unnið hjá Rafmar og Straumvirki áður en hann kom til starfa hjá Johan Rönning. Hans aðaláhugamál eru útivist og kvikmyndir.
Karl Bóasson er 42 ára Reyðfirðingur og hefur meðal annars verið á sjó, starfað lengi við bílasölu og nú síðast hjá Rafmar áður en hann kom til starfa hjá Johan Rönning. Karl er giftur Árdísi Aðalsteinsdóttur og eiga þau 3 börn. Aðaláhugamál hans eru m.a. skotveiði og vélsleðar.

Þeir félagar eru boðnir velkomnir til starfa.
-
