Johan Rönning hf opnar glæsilegt útibú á Selfossi

Föstudaginn 16 febrúar sl. opnaði Johan Rönning sitt fjórða útibú á landsbyggðinni, að Eyrarvegi 67 á Selfossi. Um er að ræða rafbúnaðarheildsölu fyrir fagaðila. Fyrir rekur fyrirtækið útibú á Akureyri, á Reyðarfirði og í Reykjanesbæ. Undanfarin mánuð hefur verið unnið hörðum höndum að breytingum og lagfæringum á húsnæðinu og er mál manna að vel hafi til tekist. Að stærstum hluta voru það starfsmenn Johan Rönning hf sem unnu verkið, en einnig voru heimamenn kallaðir til.

Ráðnir hafa verið 2 starfsmenn, þeir Guðbrandur Einarsson rekstrarstjóri og Herbert Viðarsson sölumaður.
Af því tilefni var boðið til opnunarveislu og nýttu margir sér boðið, skoðuðu húsakynni og þáðu veitingar.
Hér eru nokkrar myndir frá opnuninni.




-
