Aukin þjónusta.
Nú nýlega var ákveðið að bæta enn þjónustu Johan Rönning hf með auknum bílakosti. Er það liður í að flýta afgreiðslutíma pantana á höfuðborgarsvæðinu og þar af leiðandi að auka þjónustuna til muna. Undanfarið höfum við verið með þrjá bíla í útkeyrslu til viðskiptavina okkar og hefur verið nóg að gera fyrir þá. Nú höfum við bætt við fjórða bílnum til að flýta afgreiðslutíma. Fyrir utan að auka útkeyrslugetuna mun fjórði bíllinn einnig nýtast í útkeyrslu heimilistækja og því má segja að fyrirtækið fylgi vörunni alla leið heim að dyrum.

-
