Nýr fjármálastjóri

Frá og með 1 október nk. mun Margrét Pétursdóttir taka við nýju starfi fjármálastjóra hjá Johan Rönning hf.
Margrét hóf störf hjá fyrirtækinu í apríl 2000 og hefur starfað sem bókari þar til nú að hún tekur við starfi fjármálastjóra.
Aðspurð sagði hún starfið leggjast vel í sig, hún væri að starfa með góðu fólki og svo væri alltaf gaman að takast á við nýja hluti.
Margrét er gift Ómari Árnasyni og eiga þau eina dóttur.
Við óskum Margréti til hamingju með starfið.
-
