Nýr starfsmaður á Reyðarfirði

Ráðin hefur verið nýr starfsmaður hjá Johan Rönning hf á Reyðarfirði. Hann heitir Heiðar Már Antonsson og er 29. ára gamall. Heiðar starfaði áður sem deildarstjóri hjá Byko á Reyðarfirði.

Frá því félagið opnaði útibú á Reyðarfirði í október 2005 hefur eftirspurn eftir vörum og þjónustu Johan Rönning hf stóraukist og ekki vanþörf á að bæta við starfsmanni. Það er liður í því að bæta þjónustuna enn frekar.

Við bjóðum Heiðar velkominn til starfa hjá félaginu.


-