Nýir starfsmenn í Reykjanesbæ.

Nýjir starfsmenn hafa verið ráðnir í útibú okkar í Reykjanesbæ. Það eru þeir Björgvin Arnar Björgvinsson sem mun stýra útibúinu og Guðbjörn Ólafsson sem mun sjá um að selja heimilistækin

 

Í tilefni af því var boðið til grillveislu eitt föstudagshádegi í lok ágúst og viðskiptavinum boðið að koma og fá sér grillaða hamborgara og gos með. Var gerður góður rómur að þessu og var vel mætt.

Við bjóðum Björgvin og Guðbjörn velkomna til starfa.


-