Ljósanótt í Reykjanesbæ
Nýlega stóð yfir ljósanótt í Reykjanesbæ, og útibú okkar að Hafnargötu 52 tók fullan þátt í hátíðahöldunum. Þeir Björgvin og Guðbjörn stóðu vaktina laugardaginn 2. sept, höfðu opið fram eftir degi og buðu uppá rjúkandi kaffi og kleinur. Börnunum var boðið uppá Svala meðan gátu foreldrarnir gert góð kaup á prúttmarkaði sem settur var upp sérstaklega í tilefni Ljósanætur, en markaðurinn innihélt að sjálfsögðu úrval allskyns ljósa. Margir litu við í Rönning Reykjanesbæ, fengu sér kaffi og kleinur og kíktu á prúttmarkaðinn.
-

