Nýtt húsnæði á Reyðarfirði

Þann 23. júní síðastliðinn var vígt nýtt 400 m2 verslunarhúsnæði að Nesbraut 9 á Reyðarfirði. Fyrir hafði starfsstöðin verið rekin í gámum og því húsið kærkomið.
Í vígsluna mættu fjölmargir viðskiptavinir Johan Rönning og þáðu veitingar frameftir kvöldi.
Ásamt því að bjóða upp á mikið úrval af almennu raflagnaefni er mælingarvél fyrir strengi á staðnum þannig að hægt er að fá strengi niðurmælda. Einnig er boðið upp á mikið úrval af DeWalt verkfærum ásamt því að í 80 m2 er stórglæsileg heimilistækjaverslun undir nafni "Rönning" .
-
