Reyðarfjörður á áætlun

Vel gengur að reisa 400m2 stálgrindarhús Johan Rönning hf. á Reyðarfirði. Samið var í febrúar síðastliðnum við verkatafyrirtækið Svarthamar um reisingu á húsinu. Því miður urðu nokkrar tafi á afhendingu, en nú er húsið komið til landsins og gengur verkið samkvæmt áætlun.

Starfsemi á Reyðarfirði hófst í september síðastliðnum í fjórum skrifstofugámum. Ekki er hægt að segja annað en Austanmenn hafi tekið vel á móti Johan Rönning og hafa viðtökur farið fram úr björtustu vonum.

Opnunartími á Reyðarfirði er alla virka daga milli kl. 08.00 - 18.00. Símanúmerið er 470-2020.


-