Október 2019
Tenglar með USB
Berker er komin með á markað tengla sem eru með tveimur innbyggðum USB hleðslutenglum. Tenglarnir eru komnir á lager hjá okkur og eru fáanlegir í öllum vinsælustu línunum frá þeim. Frábær viðbót við vöruúrval Berker.

Tengill S1 Hvítur glans með USB
Tengill S1 Hvítur matt með USB
Tengill S1 Svartur með USB
Tengill Q Hvítur með USB
Tengill K1 Hvítur með USB


Gjöf til Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Á dögunum færðum við rafmagnsdeild Fjölbrautaskóla Suðurnesja veglegan töflupakka frá Hager. Guðni Ingimundason rekstrarstjóri útibús okkar í Reykjanesbæ afhenti þeim gjöfina og er ósk okkar að hún eigi eftir að koma að góðum notum.


Mynd/Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Viltu vita meira um hleðslustöðvar?

Rafbílum fjölgar stöðugt á götunum og verðum við flest vör við aukna eftirspurn eftir hleðslustöðvum fyrir bílana. Við bjóðum rafverktökum og starfsfólki þeirra að koma á hádegiskynningu til að fræðast um þær lausnir sem Johan Rönning getur boðið. Sérfræðingar okkar fara yfir eiginleika hleðslutækjanna ásamt því að svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Endilega hafðu samband við okkur á netfangið ronning@ronning.is og við finnum tíma fyrir þig.


 

Rakaþéttur lampi

Vorum að fá á lager þessa lampa frá Thorn. Lampinn kemur í fjórum lengdum, 663mm, 1263mm, 1563mm og 1825mm. Hann er auðveldur í uppsetningu, gegnumtengjanlegur og hefur þéttleika IP66. Hægt er að hafa hann hangandi eða beint á loft og fylgir festing fyrir hvort tveggja. Virkilega snyrtilegur lampi sem vert er að skoða nánar. 
Lampinn er fáanlegur í vefverslun okkar Rönning.is: Rakaþéttur lampi Eco Lucy IP66
 

 
Nemendur í heimsókn
Síðastliðinn föstudag fengum við nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í heimsókn til okkar. Við kynntum þeim það helsta sem við bjóðum uppá ásamt því að kynna þeim helstu kosti vefsíðunnar okkar. Að lokum var boðið uppá pizzu og föstudagskleinur á eftir. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.

Útiljós

Dagarnir eru farnir að styttast og þá fer fólk að spá í útilýsingu. Við eigum mikið úrval af ljósum á lager og langar okkur að benda á Piazza II frá Thorn. Virkilega snyrtilegur og sterkbyggður lampi sem hentar vel að setja í töluverða hæð. Lampinn er 25W (2910lm), hefur þéttleika IP65 og höggþol IK10. Hann hentar því vel íslenskum aðstæðum. Þetta ljós er meðal annars notað til að lýsa upp útbú okkar á Reyðarfirði.

Hérna er hlekkur á lampann í vefverslun okkar: Piazza II

 



Við mælum með að skoða úrvalið af ljósum hjá okkur á Rönning.is/ljósbúnaður

Hitastrengir

Núna er rétti tíminn til að græja þakrennurnar heima og vatnslagnirnar í sumarbústaðnum fyrir veturinn. Erum með mikið úrval af hitastrengjum á lager hjá okkur ásamt mottum sem fara beint undir flísar. Einnig eru til lausnir til að setja undir parket. Hafið samband við sölumenn okkar og þeir aðstoða þig við val á réttum streng fyrir þig. 
 


 

Þilofnar

Roundline ofnarnir frá Tego hafa verið til sölu hjá okkur í mörg ár og er komin mjög góð reynsla á þá. Núna var Tego að koma með ofn sem er IP24 (splash proof) sem hentar að nota inn í votrýmum. Þeir koma í tveimur stærðum, 300w og 600w.

Hérna má sjá þá á heimasíðunni okkar:
Þilofn 300w 33x40cm IP24
Þilofn 600w 53x40cm IP24

Kemur þú með kefli?

Við viljum vekja athygli viðskiptavina okkar á því að við tökum vel á móti  keflum sem eru allt að 1m í þvermál og þá sérstaklega smærri plastkeflum.

Við hvetjum alla sem eiga slík að koma þeim til okkar í næsta útibú Johan Rönning þar sem þau geta átt framhaldslíf.


 
Facebook
Rönning.is
Email
Johan Rönning | Klettagörðum 25, 104 Reykjavík | s. 5 200 800

Verslanir okkar