ÁVARP FORSTJÓRA
Ágætu viðskiptavinir.
Enn færist fjör í leikinn með bættu rekstrarumhverfi og munum við
minnast ársins 2015 sem ársins þar sem viðsnúningurinn varð
raunverulegur. Samhliða því að fagna góðum árangri í vinnumarkaðskönnun
VR enn eitt árið, höfum við verið að undirbúa okkur undir frekari vöxt.
Við höfum bætt þjónustuna með lengri opnunartíma útibúa frá klukkan 7:30
á morgnana við góðar undirtektir. Við höfum einnig tekið í notkun
öfluga heimasíðu þar sem viðskiptavinir geta nálgast upplýsingar um
vörur og þjónustu félagsins allan sólarhringinn og verslað. Við
einsetjum okkur að kynna fjölmargar áhugaverðar nýjungar á þeim
vettvangi þegar líður á árið. Við trúum því að sameiginlega geti nýir
þjónustuþættir hjálpað viðskiptavinum okkar að undirbúa verk sín betur
þannig að tími nýtist enn betur á verkstað. Aukin umsvif kalla á fjölgun
í hópi starfsmanna í sölu og þjónustu, en nýir öflugir starfsmenn eru
að bætast í góðan hóp starfsmanna félagsins. Í byrjun ársins
2016 opnar félagið nýtt útibú á Grundartanga og væntum við
þess að með þessari viðbót munum við ekki eingöngu stórbæta þjónustu
okkar fyrir fyrirtækin á svæðinu heldur einnig styrkja okkur sem
þjónustuaðila á iðnaðar- og stórnotendasviði. Hjá Johan Rönning gangið
þið sem fyrr að vísri traustri þjónustu, reynslu, þekkingu,
áreiðanleika, en ekki síður skemmtilegheitum.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Haraldur Líndal Pétursson
|