NÝTT Á LAGER: DEYFIR FYRIR LED-LJÓS
Höfum
tekið á lager deyfi frá ABB til að laga ýmis vandamál sem tengjast
LED-ljósum. Deyfinn má til dæmis nota á til að koma í veg fyrir
sjálfræsingu spar- eða LED pera. Hann kemur einnig í veg fyrir
eftirljóma þegar slökkt hefur verið á lágspenntum halógen eða LED perum,
sem getur myndast vegna gáruspennu eða í tengslum við þrýstiljósdeyfa
án núlltengingar. Deyfirinn dregur úr suði eða brúmmi í rafeindaspennum
sem tengjast ljósdeyfum, hvort sem er snúnings- eða þrýstideyfum án
núlls. Hann fjarlægir einnig gáruspennu á stýrilínum fyrir gardínurofa
sem stýra fleiri en einum gardínumótor. Lengd tengivíra er 235
mm.
Vörunúmer: Utanmál [mm]:
6599-0-2290 22 x 25
|