Birgjar
Sem leiðandi fyrirtæki á íslenska rafbúnaðarmarkaðnum er nauðsynlegt að vera í góðu og traustu samstarfi við birgja. Johan Rönning hefur aðgang að fjölmörgum birgjum sem margir hverjir hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi og fyrir löngu sannað sig sem traustur valkostur.
Fyrirtækið leggur mikin metnað í að velja birgja af kostgæfni og eru gæði, áreiðanleiki, öryggi og ending í fyrirrúmi við val þeirra.
Við veljum okkur trausta birgja, fyrirtæki sem leggja metnað í að vera fremst á sínu sviði.
Með því að smella linkinn hér að neðan getur þú þú fengið upplýsingar um nöfn, vöruúrval og heimasíður okkar helstu birgja.